Notaðir bílar | fös. 29. jan. 2010

Rýmingarsala á notuðum bílum hjá Brimborg

Á rýmingarsölunni má finna bíla eins og Ford Expedition á 700 þúsund króna afslætti.
Sala notaðra bíla hefur verið mikil hjá Brimborg allt síðasta ár og hafa sölumenn Brimborgar lagt mikið á sig til þess að bjóða góð kjör, góða bíla og samkeppnishæft verð. Þetta hefur gengið vel ef marka má söluna því hún hefur haldist mjög góð síðustu mánuði. Nú vill Brimborg gera enn betur og því er rýmingarsöluverð á bílunum sem hafa verið auglýstir síðustu daga.

Langar þig í átta manna lúxusjeppa? Kíktu þá á Ford Expedition Limited árgerð 2006 sem er nú á tilboði á 3.690.000 kr.
Eða ertu veikur fyrir Volvo? Þá er til Volvo S60 bíll, einnig 2006 árgerð, á 2.690.000 kr. Fyrri bíllinn er á 700 þúsund króna afslætti og sá síðari á 600 þúsund króna afslætti.

Nú er tækifærið til að endurnýja farskjóta fjölskyldunnar því verðin eru mjög góð. Kaffi er á boðstólnum og hægt er að spyrja söluráðgjafa Brimborgar út í sveigjanlega greiðslumöguleika og eins er hægt að setja notaða bíla upp í.

Opið er á morgun, laugardag, milli kl. 12 og 16 að Bíldshöfða 6.

Notaðir bílar

Nýir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli