Brimborg
|
mán. 16. ágú. 2010
Thrifty ríður á vaðið með rýmingarsölu á bílaleigubílum
Þessi Ford C-Max er einn tilboðsbílanna á rýmingarsölu Thrifty
Thrifty bílaleiga býr yfir miklum flota allskonar bíla, af öllum stærðum og gerðum og í öllum verðflokkum, sem nú skal selja á mjög góðu verði. Thrifty ríður nú á vaðið með rýmingarsölu á bílaleigubílum svo rýma megi til fyrir endurnýjun bílaflotans næsta vor. Hægt verður að gera frábær kaup meðan rýmingarsalan stendur yfir en hún hefst formlega miðvikudaginn 18. ágúst og henni lýkur 4. september.
Á rýmingarsölunni verður vel á annað hundrað bíla í boði og verða þeir til sýnis bæði inni og úti á sölusvæðum Brimborgar í Reykjavík, við Bíldshöfða 6, og í umboði Brimborgar á Akureyri, Tryggvabraut 5.
Í boði verða nýlegir Thrifty bílaleigubílar á afar hagstæðu verði, en veittur verður mjög góður afsláttur af markaðsverði bíla og verður hægt að sannreyna Thrifty afsláttinn með því að bera hann saman við viðmiðunarverð Bílgreinasambandsins á
www.bgs.is.
Þeir sem vilja gera hagstæð bílakaup, ættu því að kynna sér hvaða bílar eru til sölu á
http://notadir.brimborg.is/Notadir-Bilar-a-skra og haka við „velja eingöngu tilboðsbíla“ í leitarvélinni.
Bílar af öllum stærðum og gerðum á frábæru rýmingarverði
Bílaleigan Thrifty hóf starfsemi hér á landi vorið 2009 og náði bílaleigan strax góðum árangri. Í ár hefur eftirspurnin eftir bílaleigubílum Thrifty verið mjög mikil og því hefur bílaflotinn vaxið hratt.
Thrifty þarf því að selja fjölbreytt safn af bílum fyrir veturinn og því verða til sölu bílar af öllum mögulegum stærðum og gerðum og í öllum verðflokkum. Ekki er einungis um fólksbíla að ræða því atvinnubílar verða einnig á rýmingarsöluverði.
Hvort sem þú leitar að fullvöxnum jeppa eða hentugum borgarbíl ættir þú að finna bíl við þitt hæfi á rýmingarsölu Thrifty. Nýttu tækifærið og gerðu kaup dagsins.
Rýmingarsala Thrifty fer fram í samstarfi við Brimborg. Söluráðgjafar Brimborgar sýna bílana, sjá um reynsluakstur á þeim og veita allar nánari söluupplýsingar. Það eina sem þú þarft að gera, er að koma við á Bíldshöfða 6 eða Tryggvabraut 5 á Akureyri og velja þann Thrifty bílaleigubíl sem þér líst best á.
Komdu í Brimborg og gerðu bílakaup dagsins á Thrifty bílaleigubíl. Við höfum opið frá kl. 09-18 virka daga og kl. 12-16 á laugardögum.
Rýmingarsala bílaleigunnar Thrifty hefst miðvikudaginn 18. ágúst. Vertu tilbúinn. Finndu þér bíl.