|
Notaðir bílar
|
þri. 14. sep. 2010
Brimborg lækkar verð á notuðum bílumEinn af tilboðsbílunum. Ford Focus Trend 2006 á tilboði á 1690 þúsund.
Brimborg ríður á vaðið með verðlækkanir á notuðum bílum í kjölfar verðlækkana á nýjum bílum. Átakið verður kynnt næstu daga og verður hægt að skoða nýtt verð á notuðum bílum á notadir.brimborg.is en þar verða jafnframt einstök tilboð í gangi. Sem dæmi má nefna að tilboðsbíll dagsins var Peugeot 307 XT 1,6 sjálfskiptur, skráningardagur 10/2006. Hann var fljótur að seljast á tilboðsverðinu kr. 1390 þúsund en fullt verð var kr. 1880 þúsund. Fleiri tilboðsbílar eru þó til og má einnig fylgjast með tilboðum á Facebook síðu Brimborgar. Enn er til dæmis á tilboði Ford Focus Trend, nýskráður í ágúst 2006, á kr. 1690 þúsund en hann var áður á kr. 1930 þúsund. |
Notaðir bílarNýir bílarUm Brimborg
ÞjónustaBílaleigaHafðu sambandStarfsmennTengdir hlekkir |