|
Notaðir bílar
|
fös. 17. sep. 2010
Góð sala á notuðum bílum í sókn BrimborgarNýjasta kynslóð Ford Fiesta, árgerð 2010, ekinn 14 þúsund km, á 2070 þúsund.
Á sama tíma hafa nokkrir tilboðsbílar verið kynntir sérstaklega á Facebook og hefur það gefið mjög góða raun, þeir hafa raunar allir farið á örskömmum tíma enda um sérstaklega góð tilboð að ræða. Í vikunni fór meðal annars stórglæsilegur Ford Focus ST sportbíll á afar góðu verði en hann var seldur í gegnum Facebook síðu Brimborgar. Á sölusvæði notaðra hjá Brimborg í Reykjavík og á Akureyri má einnig finna tilboðsbíla dagsins en í þeim tilfellum hefur verðið verið lækkað enn frekar. Sannkallað uppsveifluverðNýjasta tilboðið á Facebook er Ford Focus skutbíll árgerð 2003 á 900 þúsund krónur en af honum hafa verið slegnar 150 þúsund krónur. Á notadir.brimborg.is er hægt að haka við „velja eingöngu tilboðsbíla“ og þá sjást fleiri tilboð, t.d. VW Golf árgerð 2005 á kr. 1090 þúsund en hann var áður á kr. 1490 þúsund.Það er því um sannkallað uppsveifluverð að ræða hjá Brimborg Reykjavík og Brimborg Akureyri. Þjónustutilboð Brimborgar eru líka enn í góðu gildi, t.d. 2,5 lítra af rúðuvökva á 298 krónur og fyrir þá sem koma og kíkja á söluráðgjafa Brimborgar verða kaffi og kleinur á boðstólnum. Á laugardaginn verður opið frá kl. 12-16. |
Notaðir bílarNýir bílarUm Brimborg
ÞjónustaBílaleigaHafðu sambandStarfsmennTengdir hlekkir |