Fyrsti kafli: Upphafið, þjónusta við bíla
• 1964 Bílaverkstæðið Ventill stofnað. 2 starfsmenn.
• 1969 Innflutningur á bílavarahlutum hafinn. 5 starfsmenn.
• 1971 Eigið húsnæði byggt; bílaverkstæði, varahlutaverslun og skrifstofur. 12 starfsmenn.
• 1973 Sala saumavéla hefst. 15 starfsmenn.
• 1977 Sala og dreifing Daihatsu bifreiða frá Japan hefst. 27 starfsmenn.
• 1988 Volvo Cars, Volvo Trucks, Volvo Buses, Volvo Penta og Volvo vinnuvéla umboð yfirtekin. 65 starfsmenn.
• 1995 Ford umboð tekið yfir. Komið á viðskiptasambandi bæði við Ford í Evrópu og Ford í Ameríku. 85 starfsmenn.
• 1996 Þórshamar á Akureyri keyptur og verður Brimborg Akureyri. Húsnæði að Tryggvabraut 5 er 1000 fermetrar. 98 starfsmenn.
• 1999 Flutt í ný 6.000 fermetra sérhönnuð húsakynni við Bíldshöfða 6 í Reykjavík.Nýir sýningarsalir fyrir Ford og Volvo teknir í notkun. Ný varahlutaverslun tekin í notkun. Endurbætur gerðar á verkstæðum fyrir Ford og Volvo. Söludeild notaðra bíla efld með nýjum sýningarsölum og stærra útisvæði. 100 starfsmenn.
• 2000 Citroën umboð bætist við starfsemina. Starfsemi Max1 hefst. 500 fermetrar bætast við húsakynni. 115 starfsmenn.
• 2003 Kjörorð fyrirtækisins „Öruggur staður til að vera á“ kynnt.
• 2004 Volvo atvinnutækjasvið eflt og starfsemin endurskipulögð. 125 starfsmenn.
• 2005 Mazda umboð bætist við starfsemina. Nýir sýningarsalir fyrir Mazda og Citroën teknir í notkun að Bíldshöfða 8. Verkstæði fyrir Mazda og Citroën opnað. Max1 opnar nýtt útibú. Verkstæði fyrir Citroën og Mazda opnað. 2000 fermetrar bætast við húsakynni. 150 starfsmenn.
• 2006 Nýtt útibú Max1 opnað við Bíldshöfða. Max1 er nú á tveimur stöðum í Reykjavík, Bíldshöfða 5a og Bíldshöfða 8.
• 2007 Nýtt útibú Max1 opnað við Jafnasel. Brimborg tekur yfir starfsemi Vélalands.
- Gæðastjórnunarkerfi Brimborgar fær ISO 9001 vottun.
• 2008 Nýtt útibú Max1 opnað við Knarrarvog.
- Nýtt og eitt fullkomnasta upplýsingatæknikerfi fyrir bílgreinina tekið í notkun.
• 2009 Samstarf við amerísku bílaleigurnar Dollar og Thrifty hefst. Saga Car Rental bætist við starfsemina. Afgreiðslustaðir fyrir bílaleigurnar á þremur stöðum á landinu. Þær ná skjótt sterkri stöðu á ferðamarkaðnum. Nýtt útibú Max1 opnað við Dalshraun í Hafnarfirði.
• 2010 Nýtt útibú Vélalands opnað við Dalshraun í Hafnarfirði. Bætist við starfsemi Vélalands við Vagnhöfða í Reykjavík. Starfsmenn Brimborgar um 175.
Starfsemi Brimborgar hefur tekið stakkaskiptum síðan grunnurinn var lagður fyrir 47 árum síðan. Bílaverkstæðið Ventill, sem stofnað var 1964, varð grundvöllurinn að Brimborg 1977. Brimborg er nú orðið eitt öflugasta fyrirtæki landsins í innflutningi á farar- og flutningatækjum hvers konar til atvinnurekstrar eða einkanota. Uppgangur Brimborgar hefur verið mikill, og hvað mestur undanfarinn áratug. Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu, bílaleigu og allsherjar viðhalds- og viðgerðarþjónustu fyrir bíla í hæsta gæðaflokki.
Þótt auður hvers fyrirtækis felist að miklu leyti í góðu skipulagi og rekstri er mannauðurinn ekki síður mikilvægur. Þar hefur Brimborg miklu láni að fagna sem sést best á því að margir af um 175 starfsmönnum fyrirtækisins hafa starfað hjá því í yfir 20 ár. Þetta er þrautþjálfað fólk með mikla reynslu og þekkingu og slík tryggð starfsmanna við fyrirtæki í harðri samkeppni er ómetanleg.
Saga Brimborgar er viðburðarík og að sumu leyti ævintýraleg. Fyrirtækið var stofnað árið 1977 þegar innflutningur hófst á Daihatsu bílum frá Japan en aðdragandinn hófst töluvert fyrr.
Upphafið má rekja aftur til ársins 1964 þegar bílaverkstæðið Ventill, tók til starfa við Köllunarklettsveg með ventlaviðgerðir sem sérgrein. Fljótlega tók fyrirtækið að sér þjónustu á Toyota bílum og í framhaldi af því var stofnuð varahlutaþjónusta um þann rekstur, Toyota varahlutaumboðið, árið 1969. Tengingin við Toyota tók á sig ýmsar myndir og ein þeirra var innflutningur á Toyota saumavélum sem hófst árið 1973. Saumavélarnar áttu heldur betur eftir að koma við sögu síðar.
Þar með var fyrsti kaflinn í sögu Brimborgar hafinn en hann stóð yfir í tíu ár og jókst velta fyrirtækisins stöðugt.
Um miðjan áttunda áratuginn varð ljóst að Toyota umboðið ætlaði sér að taka við allri viðgerðar- og varahlutaþjónustu á Toyota bílum þannig að eigendur Ventils og Toyota varahlutaumboðsins urðu að finna fyrirtækjum sínum nýjan rekstrargrundvöll. Þá komu við sögu Toyota saumavélarnar, en fyrir milligöngu framleiðanda þeirra komst á samband við japanska bílaframleiðandann Daihatsu. Það reyndist happadrjúgt samband. Samningur um innflutning og einkaumboð fyrir Daihatsu bíla var undirritaður 1976 og árið eftir tók Brimborg formlega til starfa.Tímasetningin var góð. Daihatsu hafði með Daihatsu bílnum fangað athygli heimsbyggðarinnar sem dáðist að hinum knáa bíl með kýraugunum. Daihatsu bílar seldust vel á Íslandi á þessum árum, sérstaklega um miðjan níunda áratuginn.
Þar með var annar kaflinn í sögu Brimborgar hafinn.
Þann 22. júlí 1988 urðu kaflaskipti í sögu Brimborgar er fyrirtækið keypti Volvo umboðið á Íslandi, Velti h.f., og gerðir voru samningar um einkaumboð Brimborgar fyrir Volvo á Íslandi. Við það jukust umsvif fyrirtækisins verulega því með umboðinu fylgdu allar framleiðsluvörur Volvo, fólks- og vörubílar, langferðabílar og strætisvagnar, Volvo Penta báta- og ljósavélar, vinnuvélar og vökvadælur, auk viðhalds- og varahlutaþjónustu. Auk framangreinds hóf Brimborg innflutning á ýmsum öðrum vörum svo sem HIAB vörubílskrönum, Focolift vörulyftum, Multilift gámakrókum, Hultsteins kælitækjum fyrir vörubíla, Pirelli og Nokian hjólbörðum og Zetterbergs vörubílspöllum svo eitthvað sé nefnt.
Volvo bílar byggðu á afar góðum grunni á Íslandi og var stundum talað um Volvo sem fasteign á hjólum. Volvo bílar voru þá sem nú afar endingargóðir og áreiðanlegir og má segja að tilkoma Volvo hafi haft mikil áhrif á þá stefnu sem rekstur Brimborgar tók á næstu árum. Áfram var byggt á traustum og öruggum grunni og tók Brimborg við Volvo á góðum tímamótum þar sem hinir vinsælu Volvo 850 bílar voru á næsta leiti og margar nýjungar í öryggismálum hjá Volvo voru kynntar á næstu árum.
Þar með var þriðji kaflinn í sögu Brimborgar hafinn.
Þann 31. janúar 1995 urðu önnur kaflaskipti í sögu Brimborgar er fyrirtækið yfirtók Ford og Citroën umboðin af Glóbus. Samningar um einkaumboð Ford og Citroën voru í höfn og var ákveðið, með samþykki Citroën í Frakklandi, að bíða með kynningu og uppbyggingu á Citroën merkinu fyrst um sinn. Áhersla var lögð á uppbyggingu Ford vörumerkisins á Íslandi. Með Ford umboðinu fylgdu allar framleiðsluvörur Ford Motor Company; fólksbílar, sendibílar, jeppar, pallbílar og hópferðabílar, auka viðhalds- og varahlutaþjónustu.
Yfirtaka Brimborgar á Ford var afar mikilvægt skref. Ford er sennilega þekktasti bílaframleiðandi heims og einn sá stærsti og því var Brimborg með leiðandi bílaframleiðanda innan sinna raða. Enn og aftur var tímasetningin hjá Brimborg góð því Ford hafði nýlega kynnt til sögunnar bíl sem ætlað var að leiða sókn Ford um allan heim, hinn nútímalega Ford Mondeo. Það var því byggt á traustum grunni á næstu árum og nokkrum árum síðar bættist Ford Focus við framleiðslulínuna og styrkti hann enn frekar við velgengni Ford merkisins á Íslandi.
Þann 1. október 1996 urðu svo enn ein kaflaskipti í sögu Brimborgar er fyrirtækið keypti Þórshamar á Akureyri. Nafni fyrirtækisins var breytt í Brimborg Akureyri. Þetta var í fyrsta skipti sem bílaumboð opnaði fullbúið útibú utan Reykjavíkur sem var að fullu í eigu þess. Fleiri bílaumboð áttu eftir að fylgja frumkvæði Brimborgar þó ekki fyrr enn nokkrum árum síðar. Markmið Brimborgar með þessum kaupum var að styrkja stöðu sína á landsbyggðinni og bæta þjónustu fyrirtækisins við fjölmarga trygga viðskiptavini þess úti á landi, auk þess að auka sölu á vörum fyrirtækisins.
Þar með var fjórði kaflinn í sögu Brimborgar hafinn.
Árið 1999 var tímamótaár í rekstri Brimborgar - en aðeins með sérhannaðri aðstöðu að Bíldshöfða 6 var hægt að ná því stóra markmiði að vera það bílaumboð sem biði bestu þjónustuna. Húsnæðið að Bíldshöfða var sérhannað fyrir þarfir Brimborgar og var vandað til verks, þó varlega hafi verið stigið til jarðar. Bygging hússins tók sinn tíma enda var það kappkostað að fara varfærnislega í uppbyggingu fyrirtæksins.
Þann 1. nóvember árið 2000 opnaði Brimborg Max1 bílavaktina að Bíldshöfða, sem sér um alla almenna hraðþjónustu fyrir bíla. Útibú Max1 eru árið 2011 orðin sex að tölu, fjögur í Reykjavík, eitt við Tryggvabraut á Akureyri og eitt við Dalshraun í Hafnarfirði. Nýjasta Max1 stöðin var opnuð haustið 2009 við Dalshraun í Hafnarfirði.
Einnig í nóvember árið 2000 hóf Brimborg endurmarkaðssetningu Citroën á Íslandi, en þá hafði vörumerkið ekki verið til sölu hér á landi í 8 ár. Á stuttum tíma var þjónusta styrkt og sala aukin og hið fornfræga vörumerki Citroën er nú öflugasta franska bílamerkið á Íslandi. Citroën hafði á þeim tíma komist klakklaust í gegnum mikla endurskipulagningu og nýir og spennandi bílar komu í röðum frá fyrirtækinu. Citroën Saxo, Berlingo, Xsara Picasso og C5 voru allt gríðarlega vinsælir bílar á meginlandinu á þessu tímabili sem státuðu af þrautreyndri hönnun, hefðbundnum Citroën þægindum og rekstarhagkvæmni sem eftirspurn var eftir á Íslandi.
Starfsemi Brimborgar óx gríðarlega á árunum 2001-2005 undir kjörorðinu „öruggur staður til að vera á“ og þrefaldaðist fyrirtækið að stærð á þessum fjórum árum. Svo hraður vöxtur hefur óhjákvæmilega í för með sér vaxtarverki en samhentur hópur Brimborgara tókst, eins og svo oft áður, á við verkefnið af skynsemi og lagði á sig mikla vinnu samhliða vextinum.
Þann 1. október 2005 tók Brimborg við Mazda umboðinu á Íslandi en Mazda bílar hafa lengi verið þekktir fyrir gæði á. Mazda bílar voru með mest seldu bílum landsins árin 1985 til 1987 og áttu þeir sér dyggan hóp aðdáenda. Mazda6 og Mazda3 eru vinsælustu bílarnir og skera þeir sig úr asísku samkeppninni með því að bjóða óvenju glæsilega hönnun í bland við japönsk gæði og áreiðanleika.
Húsnæði Mazda er steinsnar frá aðalstöðvum Brimborgar eða að Bíldshöfða 8 í Reykjavík. Þar veitir Brimborg alhliða þjónustu fyrir Mazda eigendur samkvæmt gæðastöðlum Mazda.
Á sama ári og í sama húsnæði var tekið risaskref í að bæta enn frekar þjónustu við Citroën eigendur þegar nýr sýningarsalur auk verkstæðis var opnað samkvæmt ýtrustu gæðakröfum framleiðanda Citroën.
Árið 2007 tók Brimborg yfir rekstur Vélalands við Vagnhöfða í Reykjavík. Nú árið 2010 eru starfsstöðvar Vélalands á tveimur stöðum, við Vagnhöfða í Reykjavík og við Dalshraun í Hafnarfirði. Vélaland á sér langa sögu, stofnað árið 1949. Reynslumiklir starfsmenn Vélalands sinna allri hefðbundinni viðgerðarþjónustu og sérhæfðum viðgerðum að auki.
Í febrúar 2007 hlaut gæðastjórnunarkerfi Brimborgar ISO 9001 alþjóðlega gæðavottun, fyrst bílaumboða, fyrir allan sinn rekstur.
Brimborg hóf innleiðingu á einu fullkomnasta upplýsingatæknikerfi (DMS, eða Dealer Management system) í bílgreininni í október 2007 með frábærum árangri og lauk innleiðingunni á aðeins 6 mánuðum eða um vorið 2008. Hugbúnaðurinn byggir í grunninn á stöðluðum Microsoft Dynamics AX viðskiptahugbúnaði sem Annata, m.a. í samvinnu við Brimborg, nýtir til að þróa viðtæka bílgreinalausn sem heitir Annata IDMS. Við þróun kerfisins var lögð áhersla á staðlaðar lausnir til að tryggja áreiðanleika og sveigjanleika þess og gera Brimborg þannig kleift að þróa á einfaldan hátt nýjar þjónustulausnir fyrir viðskiptavini sína en um leið lækka kostnað við rekstur upplýsingatæknikerfisins. Árangurinn er framar vonum og hefur leitt til þess að IDMS lausn Annata er notuð í bílgreininni víða um heim.
Í samræmi við stefnu Brimborgar þá var tekin sú ákvörðun að hefja rekstur bílaleigu fyrir ferðamenn þann 1. febrúar 2009. Vel þekkt vörumerki í heimi bílaleiga, Dollar og Thrifty Car Rental, bættust þá formlega við starfsemi Brimborgar. Einnig keypti Brimborg bílaleiguna Saga Car Rental. Starfsstöðvar Dollar, Thrifty og Saga Car Rental eru á þremur stöðum á landinu, í Reykjavík að Bíldshöfða 8, Keflavík við Blikavöll 3 og á Akureyri við Tryggvabraut 5. Bílaleigureksturinn hefur gengið mjög vel og styrkt stoðir Brimborgar og er svo komið að sumarið 2010 voru þessar þrjár bílaleigur með um 600 bíla á sínum snærum.